Ljóðskáldafjölskyldan
Skáld Hótel Akureyri kynnir með stolti Ljóðskáldafjölskylduna sem samanstendur af 13 íslenskum skáldum. Hvert þeirra stendur fyrir einstaka rödd og persónuleika, en saman mynda þau heild sem eflir tungumálið og fagnar ljóðlistinni.
Ljóðskáldafjölskyldan
Birnir Sigurðarson
Birnir Sigurðarson er fæddur 28. apríl 1996, betur þekktur sem einfaldlega Birnir, og er íslenskur rappari, tónlistarmaður og lagahöfundur. Hann ólst upp í Kópavogi og markaði sér sess árið 2017 sem gestarappari hjá Joey Christ í vinsælu lagi „Joey Cypher“, en það var valið rapplag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Birnir Sigurðarson
Birnir Sigurðarson, known simply as Birnir (1996), is an Icelandic singer, rapper and songwriter. Growing up in Kópavogur, he rose to prominence in 2017 through his participation as a guest artist on Joey Christ’s hit ‘Joey Cypher’, which was the 6th best-selling single in Iceland during 2017, and triumphed at the Icelandic Music Awards, in the Song of the Year – rap/hip hop category.
Bragi Ólafsson
Bragi Ólafsson, semfæddist í Reykjavík 11. ágúst 1962, er ljóðskáld, leikrita- og smásagnahöfundur, en líklega þekktastur fyrir skáldsögur sínar. Hann var um árabil meðlimur hljómsveitanna Purrkur Pillnikk og Sykurmolarnir, og er einn af stofnendum útgáfufélagsins Smekkleysa, sem hefur starfað frá árinu 1986 og haft mikil áhrif í íslensku menningarlífi.
Bragi Ólafsson
Bragi Ólafsson, born in Reykjavik in 1962, is an Icelandic writer of novels, short stories, plays and poetry. His novels are undoubtedly among the most original and remarkable Icelandic stories of recent years and he has also received critical acclaim for his plays, short stories and poetry. His subtle humor and ability to depict the extraordinary in ordinary life, often while painting a tragi-comic picture, make his work thrilling in a most unconventional way.
Bríet Ísis Elfar
Bríet Ísis Elfar fæddist í Reykjavík 22. mars 1999, þekkt sem einfaldlega Bríet, og er íslensk söngkona, tónlistarmaður og lagahöfundur. Móðurafi hennar er af egypskum uppruna og flutti til Íslands árið 1965. Bríet stundaði nám við Laugarlækjarskóla og fór svo í Menntaskólann í Hamrahlíð.
Bríet Ísis Elfar
Bríet Ísis Elfar was born in Reykjavik 22 March 1999, known mononymously as Bríet, is an Icelandic singer, songwriter and multi-instrumentalist, who meticulously crafts every aspect of her work. She directs her own music videos, designs her costumes, and serves as the creative force behind the art direction of her projects, ensuring that her artistic vision is fully realized in every detail. Bríet studied at Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Brynja Hjálmsdóttir
Árið 2019 kom hennar fyrsta bók, Okfruman, út hjá Unu útgáfuhúsi. Bókin var valin ljóðabók ársins af bóksölum og hlaut þar að auki tilnefningu til Fjöruverðlauna. Fyrir næstu ljóðabók sína, Kona lítur við hlaut Brynja tilnefningu til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar.
Brynja Hjálmsdóttir
Brynja Hjálmsdóttir was born in 1992.
Okfruman (The Zygote), her first book of poetry, was published in 2019. The piece received excellent critical response, was nominated for The Icelandic Women’s Literary Award (Fjöruverðlaunin) and was awarded Poetry Book of the Year by The Icelandic Bookseller’s Choice Awards. For her next poetry book, Kona lítur við (A Woman Looks Over Her Shoulder), Brynja received a nomination for the Maístjarnan Poetry Prize.
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
Elísabet Kristín Jökulsdóttir er fædd í Reykjavík 16. apríl 1958. Hún ólst upp á Seltjarnarnesi og í Reykjavík og dvaldi í eitt ár í Grikklandi sem barn. Fyrsta bók Elísabetar, ljóðabókin Dans í lokuðu herbergi, kom út árið 1989 og síðan hefur hún sent frá sér fjölda bóka: ljóð, sögur og skáldsögur.
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
Elísabet Kristín Jökulsdóttir (b.1958) has received several awards and recognition for her work. Her first poetry collection, Dans í lokuðu herbergi (Dance in a Closed Room) was published in 1989, and she has since released further poetry collections as well as novels for children and adults, short stories, and plays, and produced dance works and performances.
Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson er fæddur í Reykjavík, 4. apríl 1961. Gyrðir ólst upp á Sauðárkróki, en hefur búið um um skeið í Borgarnesi, á Akranesi, í Garði, og með hléum í Reykjavík og hefur nánast alla sína fullorðinsævi unnið við ritstörf. Hann hefur sent frá sér fjölda verka af ýmsu tagi: ljóðabækur, skáldsögur og smásagnasöfn, en fyrsta útgefna bók hans var ljóðabókin Svarthvít axlabönd frá árinu 1983.
Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson (b. 1961) won the Nordic Council Literature Prize 2011 for his short story collection Milli trjánna (Among the Trees) „for stylistically outstanding literary art which depicts inner and outer threats in dialogue with world literature.” Elíasson made his debut in 1983. Throughout his literary career he has published a great number of works of short prose, lyric poetry and seven novels.
Hannes Pétursson
Hannes Pétursson fæddist á Sauðárkróki 14. desember 1931. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og kandídatsprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1959. Hann stundaði einnig nám í germönskum fræðum við háskólana í Köln og Heidelberg 1952 til 1954.
Hannes Pétursson
Hannes Pétursson was born in Sauðárkrókur in the north of Iceland on the 14th of December, 1931. He graduated from college in Reykjavík in 1952, and received his Cand Mag in Icelandic and Icelandic Literature from the University of Iceland in 1959. He also studied Germanics at the Universities of Cologne and Heidelberg from 1952-1954. Hannes held posts at publishing companies from 1959-1976, where he edited local history books about the region of Skagafjörður.
Linda Vilhjálmsdóttir
Linda Vilhjálmsdóttir er fædd 1. júní 1958 í Reykjavík og ólst upp á Seltjarnarnesi. Linda er sjúkraliði að mennt og starfaði við það meðfram ritstörfum um árabil, en frá árinu 2001 hefur hún eingöngu sinn ritstörfum.
Ljóð Lindu hafa birst í dagblöðum, tímaritum og safnritum frá árinu 1982. Fyrsta ljóðabók hennar, Bláþráður, kom út 1990. Þá komu allar níu ljóðabækur hennar ásamt úrvali lausaljóða út í einni bók árið 2025 undir titlinum Safnið – Ljóð Lindu Vilhjálmsdóttur.
Linda Vilhjálmsdóttir
Linda Vilhjálmsdóttir was born on June 1, 1958, in Reykjavík and grew up in Seltjarnarnes. She trained as a nursing assistant and worked in that field for many years alongside her writing. Linda’s poems have appeared in newspapers, magazines, and anthologies since 1982. Her first poetry collection, Bláþráður (Blue Thread), was published in 1990. All nine of her poetry book were featured in a collection published in 2024
Magnús Sigurðsson
Magnús Sigurðsson fæddist árið 1984 á Ísafirði. Hann vakti þegar athygli með sínu fyrsta verki, íslenskri þýðingu á stórvirki bandaríska ljóðskáldsins Ezra Pound, Söngvarnir frá Písa (2007). Bókin kom út á vegum Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands. Árið 2008 hlaut Magnús Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, fyrir ljóðabók sína Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu, þar sem þýðingar Magnúsar á ljóðum rómversku fornaldarskáldanna Katúllusar og Virgils kallast á við frumort ljóð.
Magnús Sigurðsson
Magnús Sigurðsson (1984) is a poet and translator. Born in a small fishing village in Iceland’s remote Westfjords, in 2019 he received his PhD for a dissertation on Emily Dickinson’s reception in Icelandic literature. His debut was a translation of Ezra Pound’s The Pisan Cantos, published by the University of Iceland Press in 2007. In 2008, Sigurðsson was awarded the Tómas Guðmundsson Prize for his first book of poems.
Óskar Árni Óskarsson
Óskar Árni Óskarsson er fæddur í Reykjavík árið 1950. Óskar Árni hefur lengi fengist við ljóðagerð og þýðingar. Hann sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók, Handklæði í gluggakistunni, árið 1986. Samhliða ritstörfum hefur hann starfað sem bókavörður. Hann ritstýrði og gaf út bókmenntatímaritið Ský sem kom út á árunum 1990–1994.
Óskar Árni Óskarsson
Óskar Árni Óskarsson was born in Reykjavík in 1950. Óskar Árni has long been engaged in writing poetry and translations. He published his first poetry collection, Handklæði í gluggakistunni (A Towel on the Windowsill), in 1986. Alongside his writing, he has worked as a librarian at the National and University Library of Iceland. He has published a number of poetry and/or short-prose collections, as well as translating poetry by a number of foreign poets.
Sigurbjörg Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 27. ágúst árið 1973 á Akranesi.
Hún lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1997 og prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998. Hún starfaði um árabil sem blaðamaður á Morgunblaðinu.
Fyrsta bók Sigurbjargar, ljóðabókin Blálogaland, kom út árið 1999 en síðan hefur hún sent frá sér rúman tug ljóðabóka, auk prósaverka og leiktexta.
Sigurbjörg Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir was born on August 27, 1973, in Akranes, Iceland. She completed a BA in Comparative Literature from the University of Iceland in 1997 and a diploma in Applied Media Studies in 1998. For many years, she worked as a journalist at the newspaper Morgunblaðið.
Sigurbjörg’s first book, the poetry collection Blálogaland (Land of Blue Flames), was published in 1999.
Vigdís Grímsdóttir
Vigdís Grímsdóttir er fædd í Reykjavík þann 15. ágúst 1953. Vigdís lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1973, BA prófi í íslensku og bókasafnsfræði frá Háskóla Íslands 1978 og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands 1982. Hún stundaði kandidatsnám í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands 1984–1985.
Vigdís Grímsdóttir
Vigdís Grímsdóttir was born in Reykjavík on August 15, 1953. She graduated from the Icelandic College of Education (Kennaraskóli Íslands) in 1973, received a BA in Icelandic and Library Science from the University of Iceland in 1978, and completed a degree in education and pedagogy from the Iceland University of Education in 1982. She also pursued candidate-level studies in Icelandic literature at the University of Iceland from 1984 to 1985.
Þórarinn Eldjárn
Þórarinn Eldjárn fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1949. Hann nam bókmenntir og heimspeki við Háskólann í Lundi í Svíþjóð frá 1969-1972, íslensku við Háskóla Íslands 1972-1973, bókmenntir í Lundi 1973-1975 og lauk þaðan fil kand prófi vorið 1975. Þórarinn var búsettur í Stokkhólmi á árunum 1975-1979 og dvaldist rúmt ár í Kantaraborg 1988-1989. Frá árinu 1975 hefur hann starfað sem rithöfundur og þýðandi.
Þórarinn Eldjárn
Þórarinn Eldjárn was born in Reykjavík on August 22 1949. He studied literature and philosophy at the University of Lund in Sweden between 1969 and 1972, Icelandic at the University of Iceland 1972-1973, and completed a phil.cand. degree in literature at the University of Lund in 1975. Þórarinn lived in Stockholm from 1975 to 1979 and spent a year in Canterbury in 1988-1989.