veitingastaður

Á Abba-labba-lá stíga ljóðin inn í eldhúsið

HVER MÁLTÍÐ ER AUGNABLIK Í EINLÆGRI NÆRVERU OG NAUTN

Á Abba-labba-lá stíga ljóðin inn í eldhúsið, en nafnið á veitingastaðnum er fengið frá kvæði eins ástsælasta ljóðskálds Íslendinga, Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.

Innblásin af frelsi íslenskra bókmennta leggur matargerðin áherslu á forvitni, ímyndunarafl og sjálfsöryggi. Hver réttur þróast eins og vísa – tjáningarríkur, nákvæmur og örlítið ævintýralegur.

Bragð, staður og kyrrð Norðursins mótar réttina á borðinu.

Matarstefna okkar sameinar leikandi glæsileika og djarfa tjáningu: litrík, bragðmikil og óhrædd við að fara nýjar leiðir.

Við eldum af forvitni og ævintýraþrá og eldhúsið er lifandi svið þar sem gestakokkar lífga upp á matseðilinn og nýjar hugmyndir koma saman.

Útkoman er síbreytileg upplifun sem kemur á óvart, vekur upp undrun, gleður og gefur gestum alltaf ástæðu til að snúa aftur til njóta enn frekar.

BÓKANIR OPNA SÍÐAR

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fylgjast með.

MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ SKOÐA:

FUNDARHERBERGI

MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ SKOÐA:

BARINN

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.