Bríet Ísis Elfar fæddist í Reykjavík 22. mars 1999, þekkt sem einfaldlega Bríet, og er íslensk söngkona, tónlistarmaður og lagahöfundur. Móðurafi hennar er af egypskum uppruna og flutti til Íslands árið 1965. Bríet stundaði nám við Laugarlækjarskóla og fór svo í Menntaskólann í Hamrahlíð.
Bríet byrjaði að syngja á „off-venue“ tónleikum á Iceland Airwaves 15 ára og fyrsta lagið hennar, „In Too Deep“, kom út 2018.
Platan Kveðja, Bríet kom út árið 2020. Öll lögin af þeirri plötu náðu inn á Topp 10 lista Spotify á Íslandi og var hún valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Þá var Bríet valin söngkona ársins og textahöfundur ársins.
Hún tók höndum saman með Birni á nýrri plötu árið 2024, sem ber titilinn 1000 orð, og var valin var ein af plötum ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Í stuttmynd sem fylgir henni í leikstjórn Erlends Sveinssonar fara þau út fyrir þægindarammann og kanna nýjan hljóðheim, ólíkan þeim sem þau eru þekkt fyrir.
https://www.icelandair.com/is-is/blogg/brietxbirnirxicelandair
Bríet hefur unnið að nýrri tónlist í Nashville í Tennessee tónlist, sendi nýlega frá sér fyrstu plötuna í þríleik, Bríet – Act 1, og þar er meðal annars að finna lagið „Cowboy Killer“. https://youtu.be/2EZhExWEBFc