Bragi Ólafsson

Bragi Ólafsson, semfæddist í Reykjavík 11. ágúst 1962, er ljóðskáld, leikrita- og smásagnahöfundur, en líklega þekktastur fyrir skáldsögur sínar. Hann var um árabil meðlimur hljómsveitanna Purrkur Pillnikk og Sykurmolarnir, og er einn af stofnendum útgáfufélagsins Smekkleysa, sem hefur starfað frá árinu 1986 og haft mikil áhrif í íslensku menningarlífi.

Fyrsta bók Braga, ljóðabókin Dragsúgur, kom út hjá Smekkleysu 1986, og hann hefur síðan þá gefið út fjölda ljóðabóka, smásagnasafna og skáldsagna, auk þess að skrifa leikrit fyrir Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið, og nokkur útvarpsleikrit. Hann hefur einnig gefið út fyrsta bindi endurminninga sinna, Innanríkið – Alexíus. Fyrsta skáldsagan, Hvíldardagar, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1999; einnig sú næsta, Gæludýrin, tveimur árum síðar, og þrjár aðrar eftir það, þeirra á meðal Sendiherrann, sem líka var tilefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fyrir þriðju skáldsögu sína, Samkvæmisleiki, hlaut hann Menningarverðlaun DV. Tvö af leikritum Braga, Belgíska Kongó og Hænuungarnir, nutu fádæma vinsælda. Hann hefur einnig þýtt tvö leikrit eftir Harold Pinter fyrir Þjóðleikhúsið.

Hin sérstaka og persónulega rödd Braga, og ísmeygilegur húmor, jafnt í ljóðum, leikritum og sögum, hefur haft töluverð áhrif í íslenskum bókmenntaheimi.

Verk Braga hafa verið þýdd á fjölda tungumála, til dæmis eru þrjár skáldsagna hans útgefnar af bandaríska forlaginu Open Letter. 

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.