Gyrðir Elíasson

Gyrðir Elíasson er fæddur í Reykjavík, 4. apríl 1961.

Gyrðir ólst upp á Sauðárkróki, en hefur búið um um skeið í Borgarnesi, á Akranesi, í Garði, og með hléum í Reykjavík og hefur nánast alla sína fullorðinsævi unnið við ritstörf. Hann hefur sent frá sér fjölda verka af ýmsu tagi: ljóðabækur, skáldsögur og smásagnasöfn, en fyrsta útgefna bók hans var ljóðabókin Svarthvít axlabönd frá árinu 1983. Fyrsta skáldsaga kom svo út 1987, Gangandi íkorni, en sú saga er byggð á sögu sem hann skrifaði fimm ára gamall með sama titli. Hann hefur einnig verið ötull þýðandi erlendra bókmennta.

Eftir Gyrði liggja ríflega 40 frumsamdar bækur: skáldsögur, ljóð, smásögur og smápósar. Verk hans hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál og eru erlendar útgáfur þeirra á sjöunda tug talsins. 

Gyrðir hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og tilnefningar fyrir verk sín og þýðingar, til að mynda Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2000 fyrir smásagnasafnið Gula húsið,  Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 fyrir smásagnasafnið Milli trjánna og sænsku Tranströmer-verðlaunin 2024. Ennfremur Íslensku þýðingarverðlaunin 2012 fyrir ljóðasafnið Tunglið braust inní húsið og 2015 fyrir ljóðaúrvalið Listin að vera einn eftir japanska skáldið Shuntaro Tanikawa. Hann var tilnefndur til frönsku Médicis-verðlaunanna árið 2022 fyrir Sorgarmarsinn, Frank O’Conner alþjóðlegu smásagnaverðlaunanna árið 2009 fyrir Steintré og Evrópsku smásagnaverðlaunanna árið 1989 fyrir söguna „Konan með grösin“ úr Tregahorninu.

Undanfarin ár hefur Gyrðir hneigst æ meira að málarlistinni og hafa myndir hans meðal annars birst á hans eigin bókakápum. 

Gyrðir er nú búsettur í Reykjavík, kvæntur og á þrjú börn.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.