Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 27. ágúst árið 1973 á Akranesi.
Hún lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1997 og prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998. Hún starfaði um árabil sem blaðamaður á Morgunblaðinu.
Fyrsta bók Sigurbjargar, ljóðabókin Blálogaland, kom út árið 1999 en síðan hefur hún sent frá sér rúman tug ljóðabóka, auk prósaverka og leiktexta. Sigurbjörg er höfundur tveggja skáldsagna, Sólar sögu (2002) og Stekk (2012) en fyrir handritið að þeirri fyrrnefndu hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.
Hún hefur hlotið fleiri viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars var ljóðabókin Hnattflug valin besta ljóðabók ársins af starfsfólki bókaverslana árið 2000, ljóðsagan Blysfarir hlaut Fjöruverðlaunin 2008 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þá var ljóðabókin Brúður tilnefnd til Menningarverðlauna DV og Flaumgosar til Maístjörnunnar 2025. Ljóð Sigurbjargar hafa verið þýdd á fjölda tungumála í tengslum við bókmenntaþing og útgáfu safnrita og árið 2021 var hún handhafi ítölsku samtímaljóðlistarverðlaunanna Premio Ciampi. Af annars konar verkefnum má nefna bókverk og sýningar með pólskum ljósmyndurum og dönskum myndlistarmönnum, gjörninga með Metropoetica-hópnum og textagerð fyrir íslensk tónskáld.
.