Linda Vilhjálmsdóttir er fædd 1. júní 1958 í Reykjavík og ólst upp á Seltjarnarnesi. Linda er sjúkraliði að mennt og starfaði við það meðfram ritstörfum um árabil, en frá árinu 2001 hefur hún eingöngu sinn ritstörfum.
Ljóð Lindu hafa birst í dagblöðum, tímaritum og safnritum frá árinu 1982. Fyrsta ljóðabók hennar, Bláþráður, kom út 1990. Þá komu allar níu ljóðabækur hennar ásamt úrvali lausaljóða út í einni bók árið 2025 undir titlinum Safnið – Ljóð Lindu Vilhjálmsdóttur. Árið 2003 gaf hún út skáldævisöguna Lygasögu. Stuttmyndahandrit eftir hana og Veru Sölvadóttur, byggt á hugmynd Lindu, varð að sjónvarpsmyndinni Líf eftir dauðann sem sýnd var á RÚV. Leikrit og ljóðverk eftir hana verið sett upp í Borgarleikhúsinu og Kaffileikhúsinu.
Linda hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra ljóðskálda með ljóðabókum sínum sem hafa hlotið mikla viðurkenningu, verðlaun og góða dóma.
Linda var eitt af sjö ungum skáldum sem tóku þátt í ljóðagjörningnum „Fellibylurinn Gloría“, en hann var gefinn út á hljóðsnældu árið 1985. Þá voru ljóð hennar sýnd á Kjarvalsstöðum í apríl 1993. Hún hefur tekið þátt í mörgum bókmennta- og ljóðahátíðum hér heima og erlendis og ljóð hennar hafa komið út í fjölmörgum tímaritum og safnritum víða um heim.
Á meðal viðiurkenninga og verðlauna má nefna að Linda fékk Menningarverðlaun DV árið 1993 fyrir ljóðabókina Klakabörnin. Þá fékk hún ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið „Niður“ árið 2005. Ljóðabókin Frelsi var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2017 og hlaut verðlaun bókmenntahátíðarinnar „European Poets of Freedom“ (Evrópsk frelsisskáld) sem haldin var í Gdansk í Póllandi 2018.
Linda var Sónarskáld, heiðurskáld ársritsins Són, tímarit um ljóðlist og óðfræði, árið 2023 og birti þar þrjú ný og áður óbirt ljóð. Linda Vilhjálmsdóttir er gift Merði Árnasyni og búsett í Reykjavík