Elísabet Kristín Jökulsdóttir er fædd í Reykjavík 16. apríl 1958.
Hún ólst upp á Seltjarnarnesi og í Reykjavík og dvaldi í eitt ár í Grikklandi sem barn.
Elísabet lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1987 og hefur sótt námskeið í handritaskrifum hjá Kvikmyndasjóði og tekið þátt í Höfundasmiðju Leikfélags Reykjavíkur. Þá stundaði hún einnig nám í Listaháskóla Íslands, á námsbrautinni Fræði og framkvæmd.
Elísabet hefur unnið ýmis störf til sjós og lands, afgreiðslustörf, verið módel hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur, stundað byggingarvinnu, unnið í frystihúsum, verið háseti á bát og ráðskona á Ströndum. Einnig hefur hún verið blaðamaður, unnið þætti fyrir útvarp, verið aðstoðarleikstjóri í Þjóðleikhúsinu og haldið fyrirlestra um örsöguskrif í framhaldsskólum.
Fyrsta bók Elísabetar, ljóðabókin Dans í lokuðu herbergi, kom út árið 1989 og síðan hefur hún sent frá sér fjölda bóka: ljóð, sögur og skáldsögur. Hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2020 fyrir nóvelluna Aprílsólarkulda og var hún einnig tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þá fékk hún fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, árið 2015 fyrir Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett og einnig árið 2008 fyrir Heilræði lásasmiðsins. Hún hefur einnig skrifað fjölda leikrita sem sett hafa verið upp hér á landi og erlendis og framið ýmsa gjörninga sem hafa meðal annars birst í Ríkissjónvarpinu. Ljóð hennar hafa birst í safnbókum og tímaritum hér heima og erlendis.
2016 bauð Elísabet sig fram til forseta Íslands og gladdi margan með framgöngu sinni í kosningabaráttunni. Elísabet á þrjá uppkomna syni.
Hún býr í Hveragerði.