Brynja Hjálmsdóttir

Brynja Hjálmsdóttir er fædd árið 1992.

Árið 2019 kom hennar fyrsta bók, Okfruman, út hjá Unu útgáfuhúsi. Bókin var valin ljóðabók ársins af bóksölum og hlaut þar að auki tilnefningu til Fjöruverðlauna. Fyrir næstu ljóðabók sína, Kona lítur við hlaut Brynja tilnefningu til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar. Bókin kom út í Bandaíkjunum árið 2024, í enskri þýðingu Rachel Britton.

2022 hlaut Brynja Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið „Þegar dagar aldrei dagar aldrei“ og sama ár hlaut hún Hvatningarverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur. Skáldsaga hennar Friðsemd kom út 2024 og fékk viðurkenningu bóksala.

Brynja hefur birt ljóð og sögur í safnbókum og tímaritum bæði hérlendis og erlendis. Meðfram ritstörfum vinnur hún við kennslu og kvikmyndarýni á Rás 1. 

Brynja er með BA próf í kvikmyndafræði og MA próf í ritlist frá Háskóla Íslands.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.