Birnir Sigurðarson

Birnir Sigurðarson er fæddur 28. apríl 1996, betur þekktur sem einfaldlega Birnir, og er íslenskur rappari, tónlistarmaður og lagahöfundur. Hann ólst upp í Kópavogi og markaði sér sess árið 2017 sem gestarappari hjá Joey Christ í vinsælu lagi „Joey Cypher“, en það var valið rapplag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Hann gaf út sína fyrstu plötu Matador árið 2018, en tvö laganna höfðu þá þegar náð miklum vinældum, Já ég veit og Út í geim.

Birnir hlaut svo tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2022, annars vegar fyrir rapplag ársins „Vogur“ og hins vegar fyrir bestu rappplötu ársins Bushido.

Hann tók höndum saman með Bríeti á nýrri plötu árið 2024, sem ber titilinn 1000 orð, og var valin ein af plötum ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Í stuttmynd sem fylgir henni í leikstjórn Erlends Sveinssonar fara þau út fyrir þægindarammann og kanna nýjan hljóðheim, ólíkan þeim sem þau eru þekkt fyrir. 

https://www.icelandair.com/is-is/blogg/brietxbirnirxicelandair/

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.

Sagan er rétt að hefjast

Vertu með frá upphafi – Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð og fréttir af opnun.