SAGAN OKKAR
Rótgróið í bókmenntum
Á Skáld hótel Akureyri eru bókmenntir grunnurinn, staður þar sem ljóð, frásagnir og arfleifð íslenskrar tungu og höfunda eru í öndvegi.
Íslensk sagnahefð hefur allt frá því að land byggðist tengt okkur saman. Tungumálið mótar hver við erum og hverju við tilheyrum. Við njótum þess að hlusta og lesa. Í rödd skáldsins mætum við sjálfum okkur. Ljóð og bókmenntir skáldanna gefa okkur rödd. Við nýtum ljóðin til að túlka tilfinningar okkar og þrár. Í frásögnum þeirra þekkjum við okkur sjálf. Í gegnum kynslóðirnar hafa skáld styrkt og ögrað okkur. Þau hafa vakið okkur til umhugsunar um lífið og tilveruna. Opnað dyr inn í áður óþekkta vídd hugans, fært birtu og gleði inn í líf okkar.
Á Skáld stíga ljóðin út af blaðsíðunni og inn í rýmið. Tíminn hægir á sér. Augnablikið mótast af stað, ljóðum og kyrrð Norðursins.
Heimili okkar við Hafnarstræti tengir okkur við lifandi sögu Akureyrar. Þessi hlýlega aðalgata ber í sér takt hversdagsins — fótatak, kveðjur, lágt suð frá litlum verslunum og kaffihúsum og þann hlýja anda sem einkennir bæ sem lifir á sínum eigin norðlæga hraða.
Hafnarstræti var eitt sinn söguleg meginstoð Akureyrar og enn má sjá merki fortíðar: timburhús, hafnarlíf og vetrarbirtu sem glóir á snævi þöktum þökum
Our home on Hafnarstræti ties us to Akureyri’s living story
This gentle main street carries the steady rhythm of everyday life, footsteps, greetings, the hum of small shops and cafés, and the warmth of a town that moves at its own Northern pace.
Once the historic spine of Akureyri, Hafnarstræti still holds traces of its past: timber houses, harbour tales, winter light glowing on snow‑covered roofs.