Óskar Árni Óskarsson

Óskar Árni Óskarsson er fæddur í Reykjavík árið 1950.

Óskar Árni hefur lengi fengist við ljóðagerð og þýðingar. Hann sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók, Handklæði í gluggakistunni, árið 1986. Samhliða ritstörfum hefur hann starfað sem bókavörður. Hann ritstýrði og gaf út bókmenntatímaritið Ský sem kom út á árunum 1990–1994.

Óskar hefur hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins, auk þess að hafa verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ljóð hans hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál.


Follow the Story of Skáld

Join our mailing list for offers, opening news, and small stories from the north.